Enn innan bæjarmarkanna, við Flæðilæk og vestan við hesthúsahverfið á Æðarodda hjá gömlu akstursleiðinni inn til Akranes, reistu hjónin Ármann Gunnarsson, vélvirki (f. 1937) og Helga Sólveig Bjarnadóttir (f. 1933) verk sitt „Mótþróa“ árið 2005. Þau hjónin hafa löngum verið kennd við Steinsstaði á Akranesi.
Bjargið undir verkinu fluttu þau úr landi Steinsstaða og vóg það 8-9 tonn. Á bjarginu stendur hringlaga form, um 2 metrar í þvermál og innan hringsins er mynd af hesti í háreistu tölti sem horfir til fjallsins.
Það var Bjarni Þór Bjarnason, Akranesi, sem teiknaði „Mótþróa“ að hugmyndum Ármanns sem fór síðan með A4 teiknunaguna til bróðursonar síns, Runólfs Þórs Sigurðssonar, byggingartæknifræðings á Akranesi sem setti teikninguna í tölvutækt mál og geisladisk.
Með diskinn í hönd leitaði Ármann til fyrirtækis eins í Reykjavík sem kallast „Style“ og með nýjustu tækni sem notar háþrýsta vatns- og sandblöndu til skurðarins var hesturinn unninn í ryðfrítt stál.
Á Akranesi var það Vélsmiðjan Steðji sem sá um að valsa hringformið, Skaginn hf. sá um glerblásturinn og Ármann sauð síðan verkið saman og kom því fyrir á sínum stað.
Ármann segir að kona sín, Helga Sólveig hafi á sínum tíma m.a. fært folald til búskapar þeirra. Skepnan reyndist í uppvextinum baldin og mótþróafull og mikið þurfti fyrir hestinum að hafa. En tíminn leið og þetta reyndist ágætis gripur fullvaxinn. Þegar þau hjónin byggðu við Steinstaðina þótti mál til komið að selja hestinn góða og dugði andvirðið ffyrir lokakostnaði byggingarinnar – og inn var flutt.
Vestan við hesthúsahverfið á Æðarodda