Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona (2021)

Akraneskaupstaður óskar ár hvert eftir tillögum frá bæjarbúum um hver ætti að fá titilinn bæjarlistamaður Akraness. Menningar- og safnanefnd fer  í kjölfarið vandlega yfir tilnefningarnar og leggur fram tillögu til bæjarstjórnar um hvaða einstaklingur eða hópur hljóti titilinn bæjarlistamaður Akraness það árið. Það er bæjarstjóri sem afhendir bæjarlistamanni viðurkenninguna við hátíðlega athöfn á 17. júní ár hvert.

Árið 2021 var tónlistarkonan Valgerður Jónsdóttir Bæjarlistamaður Akraness.

Valgerður er fædd árið 1976 og uppalin á Akranesi. Valgerður lauk námi tónmenntakennara árið 2000 og söngpróf frá Tónlistarskóla FÍH árið 2003. Valgerður hefur komið víða við síðustu ár þar af lengst sem tónmenntakennari við Grundaskóla á Akranesi. Þá hefur hún ötuðlega sinnt starfi stjórnanda í karlakórnum Svanir frá árinu 2013 og í skólakór Grundaskóla frá árinu 2011.

Valgerður byrjaði tónlistarferil sinn mjög ung að aldri og átti það til, að koma sér í allt sem tengist tónlist. Valgerður stundaði píanónám við Tónlistarskóla Akraness sem barn og unglingur. Þegar hún var 13 ára gömul tók hún þátt og sigraði í Hátónsbarkakeppninni sem var þá haldin í annað sinn. Árið 1990 var Valgerður valin efnislegasti söngvari Músíktilrauna og söng þá með Skagaveitinn Frímann sem náði þá öðru sæti. Valgerður lærði við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi og tók á þeim tíma virkan þátt í listalífi FVA, s.s. í leikritum og tónlistarkeppnum.

Á tónlistarferli sínum hefur Valgerður starfað með fjölda hljómsveita, kórum og sönghópum og flutt eigin tónlist og annarra við ýmis tækifæri. Þá m.a. sigraði Valgerður lagakeppni Hannesarholts árið 2020 vegna lagsins „Áraskiptin 1901-1902 við ljóð Hannesar Hafsteins.

Valgerður hefur starfað mikið með eiginmanni sínum Þórði Sævarssyni við lagasmíðar og ýmis tónlistarverkefni ásamt dóttur þeirra Sylvíu. Árið 2018 hófu Valgerður og Þórður rekstur afþreyingarsetursins Smiðjuloftsins. Þar heldur hún reglulega tónlistarnámskeið fyrir fólk á öllum aldri.

Valgerður á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlist og er framtíðin björt. Hún semur sjálf lög og texta ásamt því hefur hún unnið að því að kynna markvisst íslenska þjóðlagahefð. Valgerður er atorkusöm í tónlistariðkun og hefur lagt mikið í starf sitt sem tónlistarkona. Framlög Valgerðar til menningar á Akranesi telst mikið og leggur hún mikinn metnað í þátttöku ýmissa viðburða og stuðlað að því að auðga menningarlíf Skagamanna með verkum sínum.

Eftirtaldin hafa fengið titilinn bæjarlistamaður Akraness