Vettvangur starfsemi Þorpsins er frítími og forvarnir og er megináherslan lögð á barna- og unglingastarf. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þorpið leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf þar sem lögð er áhersla á forvarnir. Í gegnum þetta starf er börnum og ungmennum beint inn á braut heilbrigðis og jákvæðs lífernis. Þorpið leggur metnað sinn í að veita faglega og umfangsmikla þjónustu og vinnur í nánu samstarfi við börn og ungmenni, foreldra og frjáls félagasamtök. Markmið Þorpsins er að vera opin fyrir nýungum og breytingum í starfseminni á hverjum tíma. Mikilvægt er að mæta þörfum hvers og eins og miða starfsemina út frá þörfum samfélagsins hverju sinni.
Innan veggja Þorpsins eru starfrækar eftirfarandi starfseiningar:
Skrifstofa æskulýðs- og forvarnamála sér um starfsemi Þorpins og hefur aðsetur að Þjóðbraut 13.
Símanúmer frístundamiðstöðvarinnar;
- Skrifstofa 433-1250
- Krakkadalur 433-1252
Starfsmenn eru Heiðrún Janusardóttir, verkefnisstjóri æskulýðs- og forvarnamála, Ívar Orri Kristjánsson, deildarstjóri kvöldstarfs, og Bryndís Gylfadóttir, deildarstjóri dagstarfs. Starfsmenn Þorpsins taka mið af og vinna eftir siðareglum Félags fagfólks í frítímaþjónustu.