Baskaganga

Baskaganga er gengið á milli skilta sem standa þar sem áður voru bæir en eru nú horfnir á gönguleiðinni á útivistarsvæðinu við Elínarhöfða. Á skiltunum er stuttur fróðleikur um hvert og eitt hús sem og fallegt málverk eftir Baska af húsunum. Skiltin eru fimm talsins.