Guðlaug

Velkomin í Guðlaugu við Langasand

Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins í Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum á Langasandi. 

Aðstaðan:
Guðlaug er á þremur hæðum en þriðja hæðin næst áhorfendastúku er útsýnispallur, þar undir á annarri hæð er heit setlaug og sturtur ásamt tækjarými og á fyrstu hæð er grunn vaðlaug.  Á milli hæðanna eru tröppur sem einnig mynda tengingu á mill bakkans og fjörunnar. Guðlaug er skilgreind sem náttúrulaug/afþreyingarlaug sem er opin allt árið um kring. Búningsklefar eru á staðnum og útisturtur. 

Gestir eru hvattir til að fylgjast með upplýsingaflæði hér á facebooksíðu Guðlaugar. 


Forsaga Guðlaugar
Forsaga Guðlaugar á sér rætur að rekja til ársins 2014 þegar Minningarsjóður Jóns Gunnlaugssonar úrvegsbónda og Guðlaugar Gunnlaugsdóttur húsmóður frá bræðraparti á Akranesi var formlega slitið en sjóðurinn var stofnaður árið 1969. Stjórn minningarsjóðsins ákvað þar að ráðstafa samtals 14 m.kr. til uppbyggingar á heitri laug við Langasand ásamt öðrum styrkjum til samfélagsins á Akranesi að verðmæti 54 m.kr. í reiðufé og lóðum að verðmæti 66 m.kr. Tilgangur með stofnun sjóðsins var að efla mannlíf og samfélag á Akranesi og veita ungum fátækum námsmönnum á Akranesi styrki til náms sem tengdist sjávarútvegi. Með breyttum aðstæðum og atvinnuháttum á Akranesi sóttu færri um styrk úr sjóðnum en stofnendur hugðu upphaflega. Það var því einróma samþykkt í stjórn sjóðsins að leggja sjóðinn niður og ráðstafa stærstum hluta hans til málefna tengdum slysavörnum og samfélagsmálum á Akranesi. Í kjölfar styrkveitingarinnar var settur á laggirnar starfshópur skipaður af Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, Elínu Sigrúnu Jónsdóttur barnabarni Gunnlaugs og Guðlaugar, Írisi Reynisdóttur þáverandi garðyrkjustjóra og Haraldi Sturlaugssyni. Hlutverk starfshópsins var að útfæra verkefnið um uppbyggingu á heitri laug á Langasandi og skilaði starfshópurinn af sér tillögu á haustmánuðum ársins 2015.

Um framkvæmdina
Í  ágúst árið 2017 var samningur undirritaður um byggingu Guðlaugar og hófust framkvæmdir strax samkvæmt hönnun Basalt arkitekta og Mannvits verkfræðistofu. Verktaki framkvæmdarinnar var Ístak ehf. og Vélaleiga Halldórs Sig ehf. var undirverktaki þeirra.  Rafþjónusta Sigurdórs og Píplagningaþjónustan ehf. sáu um rafmagns- og vatnslagnir laugarinnar og Trésmiðjan Akur kom að því að koma upp búningaaðstöðu. Fyrst var byrjað á því að grafa í grjótgarðinn fyrir undirstöðum og þær steyptar síðan mánuði síðar. Grjótgarðurinn var í kjölfarið settur aftur upp fyrir veturinn og hóf Ístak vinnu við að forsteypa einingar mannvirkisins. Framkvæmdir hófust á ný í júní 2018 og lauk þeim í desember sama ár. 

Vetraropnun

15. okt til 30. apríl.

  • Virkir dagar: 16:00 – 20:00
  • Helgar: 10:00 – 18:00
Sumaropnun

1. maí til 14. okt.

  • Mánudaga – föstudaga: 12:00 – 20:00
  • Laugardaga og sunnudaga: 10:00 – 18:00
Verð

Gjaldskrá Akraneskaupstaðar

Sjá fleiri verð
Staðsetning

Við Langasand

Hafa samband

Netfang: gudlaug@akranes.is
Símanúmer:
8337736