Hátíðir og söfn

Byggðasafnið í Görðum

Byggðasafnið í Görðum á Akranesi hefur á undanförnum árum skipað sér verðugan sess sem eitt helsta aðdráttarafl Akraness enda mikil upplifun að koma þangað, jafnvel fyrir þá sem hafa ekki sérstakan áhuga á söfnum.

Á safninu er sögu byggðar, atvinnu og mannlífs sunnan Skarðsheiðar gerð góð skil. Þar er m.a. geymd hin einstaka „Hagamús“ en fólk þarf að fara á safnið til að fræðast betur um þetta grunsamlega „spendýr“. Á undanförnum árum hafa gömul hús sem tengjast sögu Akraness á einhvern hátt verið flutt á svæði safnsins og gerð upp til minningar um liðna tíma. Gamli prestsbústaðurinn í Görðum eða Garðahús (frá 1876) er fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið af sinni gerð sem byggt var hérlendis og jafnvel á Norðurlöndum.